Diese Website verwendet Cookies. Cookies helfen uns bei der Bereitstellung unserer Dienste. Durch die Nutzung unserer Dienste erklären Sie sich damit einverstanden, dass wir Cookies setzen. Bei uns sind Ihre Daten sicher. Wir geben keine Ihrer Analyse- oder Kontaktdaten an Dritte weiter! Weiterführende Informationen erhalten Sie in der Datenschutzerklärung.
Lína langsokkur og litlu „hægri öfgasinnuðu vinirnir“ hennar – frá sjónarhorni ádeilunnar -
Með bæklingnum „Úllen dúllen doff – og þú ert úr leik!“ hvetur þýska Amadeu Antonio stofnunin kennara í leikskólum og grunnskólum til að skyggnast um eftir börnum sem bera einkenni þess að koma frá öfga-hægri heimilum. Þannig flokkast t.d. börn með góða borðsiði og snyrtilegt útlit, jafnvel sérstaklega ljóshærðar stúlkur með fléttur, strax í hóp þeirra sem ástæða sé til að fylgjast sérstaklega með. Láti síðan áhugasamir foreldrar íhaldsöm viðhorf í ljós, ættu öll viðvörunarljós að kvikna.[Lesa meira]
Með bæklingnum „Úllen dúllen doff – og þú ert úr leik!“ hvetur þýska Amadeu Antonio stofnunin kennara í leikskólum og grunnskólum til að skyggnast um eftir börnum sem bera einkenni þess að koma frá öfga-hægri heimilum. Þannig flokkast t.d. börn með góða borðsiði og snyrtilegt útlit, jafnvel sérstaklega ljóshærðar stúlkur með fléttur, strax í hóp þeirra sem ástæða sé til að fylgjast sérstaklega með. Láti síðan áhugasamir foreldrar íhaldsöm viðhorf í ljós, ættu öll viðvörunarljós að kvikna.
Þá kemur á einhvern hátt upp í hugann samanburðurinn við söguna um Línu langsokk og vini hennar, þau Tomma og Önnu. Lína á enga mömmu en í staðinn á hún mikið fjarverandi pabba með tilhneigingar til áfengis. Hún íklæðist minipilsi og sokkaböndum, kann enga mannasiði, hefur apa í skápnum og hest inní stofu. Sumsé engin ástæða til að hafa áhyggjur. Allt annað er upp á teningunum gagnvart Tomma og Önnu: ljóshærð, hrein og snyrtileg með báða foreldrar á heimilinu. Samkvæmt bæklingnum sumsé hægri öfgasinnuð.
Heppilegt fyrir Tomma og Önnu að í fyrsta lagi búi þau í Svíþjóð og í öðru lagi sé þetta bara barnasaga. Bæklingurinn frá þýsku Amadeu Antonio stofnuninni er aftur á móti raunverulegur og meinar þetta í fúlustu alvöru.
hlaða niður
texta útsendingar
29.11.2019 | www.kla.tv/15289
Með bæklingnum „Úllen dúllen doff – og þú ert úr leik!“ hvetur þýska Amadeu Antonio stofnunin kennara í leikskólum og grunnskólum til að skyggnast um eftir börnum sem bera einkenni þess að koma frá öfga-hægri heimilum. Þannig flokkast t.d. börn með góða borðsiði og snyrtilegt útlit, jafnvel sérstaklega ljóshærðar stúlkur með fléttur, strax í hóp þeirra sem ástæða sé til að fylgjast sérstaklega með. Láti síðan áhugasamir foreldrar íhaldsöm viðhorf í ljós, ættu öll viðvörunarljós að kvikna. Þá kemur á einhvern hátt upp í hugann samanburðurinn við söguna um Línu langsokk og vini hennar, þau Tomma og Önnu. Lína á enga mömmu en í staðinn á hún mikið fjarverandi pabba með tilhneigingar til áfengis. Hún íklæðist minipilsi og sokkaböndum, kann enga mannasiði, hefur apa í skápnum og hest inní stofu. Sumsé engin ástæða til að hafa áhyggjur. Allt annað er upp á teningunum gagnvart Tomma og Önnu: ljóshærð, hrein og snyrtileg með báða foreldrar á heimilinu. Samkvæmt bæklingnum sumsé hægri öfgasinnuð. Heppilegt fyrir Tomma og Önnu að í fyrsta lagi búi þau í Svíþjóð og í öðru lagi sé þetta bara barnasaga. Bæklingurinn frá þýsku Amadeu Antonio stofnuninni er aftur á móti raunverulegur og meinar þetta í fúlustu alvöru.
eftir wa