Diese Website verwendet Cookies. Cookies helfen uns bei der Bereitstellung unserer Dienste. Durch die Nutzung unserer Dienste erklären Sie sich damit einverstanden, dass wir Cookies setzen. Bei uns sind Ihre Daten sicher. Wir geben keine Ihrer Analyse- oder Kontaktdaten an Dritte weiter! Weiterführende Informationen erhalten Sie in der Datenschutzerklärung.
Brýnt ákall frá Children's Health Defense (Ísl: Heilsuvernd barna): Enga Covid-19 skyldubólusetningu fyrir börn og ungt fólk
Samkvæmt CHD er verið að íhuga að gefa skólum og háskólum heimild til að gefa út leiðbeiningar um skyldubundna Covid-19 bólusetningu.
Nú má engum tíma glata að vara þessar opinberu stofnanir við þeim þekktu, sönnuðu afleiðingum af mRNA bólusetningunum áður en þær opna aftur dyr sínar eftir sumarfrí.
[Lesa meira]
Samkvæmt nýlegri tilkynningu frá Children’s Health Defense er tíminn naumur til þess að gerast virkur. Upplýsendur sem varað hafa við Covid-19 bólusetningum fyrir börn, unglinga og ungt fólk hafa í auknum mæli verið ritskoðaðir og svívirtir á ýmsum samfélagsmiðlum. Það er því brýnna en nokkru sinni fyrr að upplýsa með virkum hætti gegn þessu núna með staðreyndum. Viðvörun gegn bólusetningu við Covid 19 ætti að berast strax áður en skólar og háskólar opna hurðir sínar að nýju eftir sumarfrí. Það verður að upplýsa þessar opinberu stofnanir um allan heim. Það ætti að gera þeim ljóst hvaða ábyrgð þeir taka á sig sem stofnun ef þeir vara ekki við þegar þekktum skaða af völdum Covid 19 bólusetninga. Af þessum sökum hefur Children’s Health Defense(CHD) hafið átak til að ná til skóla og háskóla með þessum skilaboðum:
Enga COVID-skyldubólusetning fyrir börn og ungt fólk!
Eftirfarandi tillaga frá Children’s Health Defense (CHD) er sniðmát upplýsinga, staðreynda og viðvörunartilmæla fyrir bréf og tölvupósta til skóla og háskóla. Sniðmátið er hægt að nota með margvíslegum hætti.
Þann 23. júní, sagði Bandaríska ráðgjafanefndin fyrir ónæmisaðgerðir „Advisory Committee on Immunization Practices“ (ACIP), [nefnd innan CDC (Center for Disease Control) sem veitir ráðleggingar fyrir hönd bandarískra stjórnvalda um hvernig beri að berjast gegn sjúkdómum með bólusetningu], að það væri „líkleg“ tengsl á milli hjartabólgu og COVID bóluefnanna Pfizer og Moderna. Embættismenn CDC staðfestu meira en 1.200 tilfelli af Myokarditis (hjartavöðvabólgu) eða Perikarditis (skert starfsemi á hjarta) hjá 16 til 24 ára unglingum sem fengu mRNA COVID bóluefni. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) mælti í kjölfarið við að bætt yrði við viðvörunar ábendingum á bóluefnið. Þrátt fyrir það sögðu embættismenn CDC að ávinningur af COVID -bóluefnunum vægi þyngra en áhættan.
Heilsuvernd barna (CHD) biður alla að nýta sér sjálfsákvörðunarrétt sinn í þágu persónulegrar heilsugæslu þegar kemur að lyfjagjöf. CHD biður einnig alla þá sem hafa áhyggjur af frjálsu vali á læknismeðferð að skrifa bréf eða tölvupósti til allra skóla og háskóla í viðkomandi sambandsríki eða fylki með beiðni um að berjast fyrir valfrelsi í læknismeðferðarmálum með því að hafna skyldu Covid -19 bólusetningum fyrir börn, unglinga og unga fullorðna. Að auki hefur CHD einnig búið til lista með yfir 300 háskólum sem eru að íhuga skyldubólusetningu.
Á fyrsta listanum eru skráðir háskólaklasar með krækjum á leiðbeiningar um bólusetningar o.fl. Næsti inniheldur upplýsingar um netföng og beinan póst til yfir 300 háskóla. Þú getur líka farið á þessa síðu frá vefsíðu CHD til aukinnar fræðslu um herferðina. CHD hvetur FDA til að draga COVID-bóluefni út af markaðnum. Lestu umsögn Laura Bono, forstjóra heilsuverndar barna:
„Ekki ætti að gefa embættismönnum í skóla og háskóla tækifæri til að fyrirskipa um læknisaðgerðir, þar með talið bólusetningar. Þegar um er að ræða bólusetningu gegn Covid-19 er ekki vitað um langtímaáhrif þessa tilraunabóluefnis á fólk á öllum aldri. Stjórnmálamenn eru miskunnarlausir og hegða sér óréttlætanlega.“ Bono benti á nýlega grein í Wall Street Journal, skrifað af tveimur læknum sem sögðu: „Heilbrigðisyfirvöld gera mistök og taka áhættu með traust almennings með því að upplýsa ekki um möguleika á skaða af tilteknum aukaverkunum bóluefnisins. Blöndun pólitískrar hlutdrægni og vísinda í átökum við lýðheilsukreppu mun hafa varanlegar afleiðingar.“
Nú má engum tíma glata því nú þegar er íhugað að útdeila leyfi fyrir COVID-19 skyldubólusetningu til skóla og opinberra stofnana. Enn er tími til að breyta pólitísku dagskránni. Styðjið vinsamlegast þessa viðleytni.
13.08.2021 | www.kla.tv/19556
Samkvæmt nýlegri tilkynningu frá Children’s Health Defense er tíminn naumur til þess að gerast virkur. Upplýsendur sem varað hafa við Covid-19 bólusetningum fyrir börn, unglinga og ungt fólk hafa í auknum mæli verið ritskoðaðir og svívirtir á ýmsum samfélagsmiðlum. Það er því brýnna en nokkru sinni fyrr að upplýsa með virkum hætti gegn þessu núna með staðreyndum. Viðvörun gegn bólusetningu við Covid 19 ætti að berast strax áður en skólar og háskólar opna hurðir sínar að nýju eftir sumarfrí. Það verður að upplýsa þessar opinberu stofnanir um allan heim. Það ætti að gera þeim ljóst hvaða ábyrgð þeir taka á sig sem stofnun ef þeir vara ekki við þegar þekktum skaða af völdum Covid 19 bólusetninga. Af þessum sökum hefur Children’s Health Defense(CHD) hafið átak til að ná til skóla og háskóla með þessum skilaboðum: Enga COVID-skyldubólusetning fyrir börn og ungt fólk! Eftirfarandi tillaga frá Children’s Health Defense (CHD) er sniðmát upplýsinga, staðreynda og viðvörunartilmæla fyrir bréf og tölvupósta til skóla og háskóla. Sniðmátið er hægt að nota með margvíslegum hætti. Þann 23. júní, sagði Bandaríska ráðgjafanefndin fyrir ónæmisaðgerðir „Advisory Committee on Immunization Practices“ (ACIP), [nefnd innan CDC (Center for Disease Control) sem veitir ráðleggingar fyrir hönd bandarískra stjórnvalda um hvernig beri að berjast gegn sjúkdómum með bólusetningu], að það væri „líkleg“ tengsl á milli hjartabólgu og COVID bóluefnanna Pfizer og Moderna. Embættismenn CDC staðfestu meira en 1.200 tilfelli af Myokarditis (hjartavöðvabólgu) eða Perikarditis (skert starfsemi á hjarta) hjá 16 til 24 ára unglingum sem fengu mRNA COVID bóluefni. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) mælti í kjölfarið við að bætt yrði við viðvörunar ábendingum á bóluefnið. Þrátt fyrir það sögðu embættismenn CDC að ávinningur af COVID -bóluefnunum vægi þyngra en áhættan. Heilsuvernd barna (CHD) biður alla að nýta sér sjálfsákvörðunarrétt sinn í þágu persónulegrar heilsugæslu þegar kemur að lyfjagjöf. CHD biður einnig alla þá sem hafa áhyggjur af frjálsu vali á læknismeðferð að skrifa bréf eða tölvupósti til allra skóla og háskóla í viðkomandi sambandsríki eða fylki með beiðni um að berjast fyrir valfrelsi í læknismeðferðarmálum með því að hafna skyldu Covid -19 bólusetningum fyrir börn, unglinga og unga fullorðna. Að auki hefur CHD einnig búið til lista með yfir 300 háskólum sem eru að íhuga skyldubólusetningu. Á fyrsta listanum eru skráðir háskólaklasar með krækjum á leiðbeiningar um bólusetningar o.fl. Næsti inniheldur upplýsingar um netföng og beinan póst til yfir 300 háskóla. Þú getur líka farið á þessa síðu frá vefsíðu CHD til aukinnar fræðslu um herferðina. CHD hvetur FDA til að draga COVID-bóluefni út af markaðnum. Lestu umsögn Laura Bono, forstjóra heilsuverndar barna: „Ekki ætti að gefa embættismönnum í skóla og háskóla tækifæri til að fyrirskipa um læknisaðgerðir, þar með talið bólusetningar. Þegar um er að ræða bólusetningu gegn Covid-19 er ekki vitað um langtímaáhrif þessa tilraunabóluefnis á fólk á öllum aldri. Stjórnmálamenn eru miskunnarlausir og hegða sér óréttlætanlega.“ Bono benti á nýlega grein í Wall Street Journal, skrifað af tveimur læknum sem sögðu: „Heilbrigðisyfirvöld gera mistök og taka áhættu með traust almennings með því að upplýsa ekki um möguleika á skaða af tilteknum aukaverkunum bóluefnisins. Blöndun pólitískrar hlutdrægni og vísinda í átökum við lýðheilsukreppu mun hafa varanlegar afleiðingar.“ Nú má engum tíma glata því nú þegar er íhugað að útdeila leyfi fyrir COVID-19 skyldubólusetningu til skóla og opinberra stofnana. Enn er tími til að breyta pólitísku dagskránni. Styðjið vinsamlegast þessa viðleytni.
eftir avr.
https://childrenshealthdefense.org/defender/contact-schools-universities-no-covid-vaccine-mandates-kids-teens/
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1HQ877gj9Qo8S8JZRFYhH4pZqRcjzY_8TuW5WxXKFZ30/edit#gid=1891020035